|
|
|
Alnæmissamtökin á Íslandi. Samtök áhugafólks um alnæmisvandann, stofnuð 5. des. 1988. kt. 541288-1129. Félagið hét upphaflega Samtök áhugafólks um alnæmisvandann en nafni þess var breytt á aðalfundi árið 1994 í Alnæmissamtökin á Íslandi. Tilgangur félagsins er: Að auka þekkingu og skilning á alnæmi. Að styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Tilgangi sínum vill félagið ná með því að leita nýrra leiða til þess að uppfræða fólk um alnæmi. Með því að stofna umræðu-, fræðslu- og stuðningshópa og með fræðslugreinum í blöðum, tímaritum, fræðsluerindum og fræðslumyndum. Einnig með því að efla sjóð félagsins m.a. með fjársöfnun, til þess að styðja smitaða og sjúka. Alnæmissamtökin hafa aðsetur í Reykjavík, en starfsvettvangur þeirra er landið allt. Félagar geta allir orðið sem hafa áhuga á málefnum þeim sem félagið lætur sig varða. Félagsmenn eru rúmlega 300, félagsgjald er 2000 kr. á ári. Alnæmissamtökin eru aðili að Öryrkjabandalagi Íslands og eiga fulltrúa í stjórn þess. Upplýsingar. Alnæmissamtökin reka upplýsingamiðstöð fyrir almenning og athvarf fyrir smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Upplýsingar fást á skrifstofu. Skrifstofan er opin alla daga frá kl. 13 - 17. Síminn er 552-8586 faxnúmer 552-0582. Fréttabréf Alnæmissamtakanna á Íslandi hefur komið út 1 sinni á ári og er dreift til félagsmanna, í skóla, félagsmiðstöðvar, heilsugæslustöðvar og víðar. Fjármál. Alnæmissamtökin hafa engan fastan tekjustofn nema félagsgjöld en hafa notið stuðnings frá Rauða krossi Íslands, Öryrkjabandalagi Íslands, ríkinu og Reykjavíkurborg. Einnig hafa félaginu borist frjáls framlög sem skipt hafa sköpum við rekstur þess. Einstaklingar sem eru HIV-smitaðir eða með alnæmi geta sótt um fjárstuðning til félagsins. Styrkir eru ekki veittir til þeirra hluta sem opinberir aðilar eiga að annast. Minningarguðsþjónusta. Alnæmissamtökin hafa árlega staðið að minningarguðsþjónustu um þá sem látist hafa úr alnæmi. Er hún haldin síðasta sunnudag í maí og er henni útvarpað á Rás 1. Námsstefna. Alnæmissamtökin á Íslandi og Rauði kross Íslands hafa staðið árlega fyrir námsstefnu um alnæmi sem haldin hefur verið á haustin að Hótel Lind og hefur hún verið öllum opin. Árið 1997 var hún haldin 7. nóvember með þátttöku Þjóðkirkjunnar og var yfirskrift hennar Er Alnæmi úr sögunni?. Á höfuðborgarsvæðinu: Göngudeild húð- og kynsjúkdóma Þverholti 18, kl. 9-11:30 (ekki þarf að panta tíma) sími 560-2320. Hægt er að biðja um kynsjúkdómapróf og er þá HIV-mótefnamæling einnig boðin. Einnig á Rannsóknardeild Borgarspítalans kl. 8 - 10 f.h., göngudeild Landspítalans kl 8 - 15. Á hvorugum staðnum þarf að panta tíma. Þar fyrir utan er einnig hægt að leita til heilsugæslustöðva og heimilislækna á höfuðborgarsvæðinu. Á landsbyggðinni: Félagsráðgjafi HIV-smitaðra og aðstandenda þeirra er Sigurlaug Hauksdóttir og starfar á Borgarspítalanum. Hún er einnig með viðtalstíma á miðvikudögum kl. 14-16 hjá Alnæmissamtökunum á Íslandi og tekur þátt í fræðslu á námsstefnum um alnæmi. Jákvæði hópurinn. Sjálfstyrktarhópur HIV smitaðra er starfandi innan vébanda Alnæmissamtakanna. Markmið hans eru:
Aðstandendahópurinn. Sjálfstyrktarhópur aðstandenda HIV-smitaðra er starfandi innan vébanda Alnæmissamtakanna. Hópurinn hittist reglulega og gengst fyrir fræðslufundum um ýmsa þætti alnæmis. Frekari upplýsingar fást á skrifstofu eða hjá félagsráðgjafa Sigurlaugu Hauksdóttur í símum 525-1000 eða 525-4547. Skrifstofa og upplýsingasími Alnæmissamtakanna á Íslandi er opin alla virka daga frá kl. 13-17 að Hverfisgötu 69, Reykjavík. Pósthólf 5238, 125 Reykjavík. Upplýsingar eru fyrir HIV-smitaða, aðstandendur og almenning, algjör trúnaður og nafnleynd. Trúnaðarsíminn er opinn á þriðjudagskvöldum frá kl. 20:00 til 22:00 Netfang er aids@centrum.is Minningarkort eru til sölu á skrifstofunni. Lágmarksverð er 500 kr. og renna tekjur af kortunum í sérstakan minningarsjóð sem notaður er til uppbyggingar athvarfsins. Hægt er að panta kortin í síma. Á skrifstofunni eru einnig til sölu málmbarmmerki, Rauði borðinn, til
styrktar félagsstarfsseminni, verð er 300 kr. Að bera Rauða borðann er
ætlað að sýna samúð og stuðning við fólk sem er smitað eða sjúkt af alnæmi og
aðstandendur þeirra.
Webmaster: alberta@centrum.is |