Tilkynningar

11.09.2002

     Árleg ráðstefna Líffræðifélags Íslands í samvinnu við Siðfræðistofnun Háskólans verður haldin laugardaginn 14. september í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Aðgangseyrir er 1000 kr og 500 kr fyrir skuldlausa L.Í. félaga, velunnara Siðfræðistofnunar og nema.

SIÐFRÆÐI OG LÍFVÍSINDI
Vits er þörf

10:00 - 10:15        Setning - Ólöf Ýrr Atladóttir, formaður Líffræðifélags Íslands
10:15 - 10:45        Vilhjálmur Árnason - Siðfræðin og lífvísindin. Inngangserindi
10:45 - 11:15        Einar Mäntylä - Eru'ða breytt matvæli ?
11:15 - 11:30        Kaffihlé
11:30 - 12:00        Þorvarður Árnason - Um (mögulegar) samræður líffræðinga og siðfræðinga
12:00 - 12:30        Ágústa Guðmundsdóttir
12:30 - 13:00        Eggert Gunnarsson - Siðfræði dýratilrauna
13:00 - 14:00        Hádegishlé

14:00 - 14:30        Kári Stefánsson - Mannerfðafræði - Til hvers? Inngangserindi
14:30 - 15:00        Bryndís Valsdóttir - Siðferðilegt sjónarhorn á einræktun fósturvísa
15:00 - 15:30        Kristbjörn Orri Guðmundsson - Stofnfrumurannsóknir
15:30 - 15:45        Kaffihlé
15:45 - 16:15        Stefán Hjörleifsson - Erfðavísindi og samfélag

16:15 - 16:45        Pallborðsumræður     Ólafur Andrésson stórnar pallborði

17:00 - 18:00        Móttaka í Skólabæ

Ráðstefnurit (Word skjal)

Auglýsing

 

18.04.2002
Föstudagsfyrirlestur 19.apríl kl. 12:20 í G-6 á Grensásvegi 12

Jörundur Svavarsson Líffræðistofnun Háskólans

FURÐUSKEPNUR Í DÝPRI HLUTA MEXÍKÓFLÓA - LÍFRÍKI METANUPPSTREYMISSVÆÐIS.

Í dýpri hluta Mexíkóflóa er ákaflega forvitnilegt lífríki á borni sjávar. Mikið magn kolvetnis- og brennisteinssambanda er þar í jarðlögum og metanuppstreymi úr botninum. Súrefnismagn við botninn er hins vegar víða frekar lágt. Margar tegundir botndýra, svo sem lindýr og burstaormar, nýta sér þetta kolefni sem orkulind og eru því alls óháðar næringu úr efri lögum sjávar, sem framleidd er af ljóstillífandi þörungum. Dýrin hafa sambýlisbakteríur í tálknum eða búk sem vinna kolefnissambönd við efnatillífun með hjálp brennisteinssambanda. Einnig lifa við þessar sérstöku aðstæður ýmis botndýr, sem sækja fæðu inn á þessi svæði. Þar á meðal er stærsta jafnfætla heimshafanna, sem verður allt að 40 cm löng.
Í erindinu verður fjallað um rannsóknarleiðangur í Mexíkóflóa í mars síðastliðnum á rannsóknaskipinu Seward Johnson II. Lífríki á botni við svokallaðan Brine Pool, sem er á um 700 metra dýpi, var kannað með hjálp mannaðs kafbáts (Johnson Sea-Link I) og með gildrum. Sýndar verða ljósmyndir af ýmsum sérkennilegum dýrum sem fundust í leiðangrinum og einnig hluti myndbands, sem tekin var við köfun.

Fyrirlesturinn verður í stofu G-6, Grensásvegi 12, kl. 12:20 stundvíslega.
Stúdentar eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Upplýsingar veita Rannveig Thoroddsen (ranntho@hi.is) og Ólafur Patrick Ólafsson (patrick@hi.is)

15.04.2002

AÐALFUNDUR LÍFFRÆÐIFÉLAGS ÍSLANDS 2002.

Aðalfundur Líffræðifélags Íslands 2002 verður haldinn þriðjudaginn 30.
apríl. Fundurinn verður að venju í stofu G-6 að Grensásvegi 12, en athygli
félagsmanna er vakin á þeirri nýbreytni að í ár hefst fundurinn kl. 17:00.
Mæting á Aðalfund hefur verið með eindæmum léleg undanfarin ár og er það
von stjórnar að þessi nýja tímasetning henti félagsmönnum e.t.v. betur en
sú sígilda. Þeir, sem áhuga hafa á að mæta, ættu því auðveldlega að geta
skotizt á Aðalfundinn á leið heim úr vinnu.
Kveðið er á um dagskrá Aðalfundar í 5. grein laga félagsins og skal
hún vera sem hér segir:

a. Skýrsla stjórnar.
b. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
c. Lagabreytingar.
d. Kosning stjórnar og tveggja endurskoðenda.
e. Inntaka nýrra félaga.
f. Ákvörðun félagsgjalda.
g. Önnur mál.

Engar lagabreytingar liggja fyrir Aðalfundi að þessu sinni, en sérstök
athygli félagsmanna er vakin á liðnum “önnur mál” að þessu sinni. Til
stendur að ræða erindið “Hvert stefnir félagið?” Fyrirlestrar hafa verið
meginuppistaðan í starfsemi félagsins frá upphafi, en undanfarin ár hefur
framboð á fyrirlestrum um líffræðileg málefni stóraukizt. Samfara því
hefur aðsókn að fyrirlestrum Líffræðifélagsins dregizt verulega saman og er
því brýnt að félagið finni auk þess aðra farvegi fyrir starfsemi sína.
Nokkrar hugmyndir hafa komið fram sem kynna á á Aðalfundinum og því eru
félagsmenn sem áhuga hafa á framgangi félagsins (sem vonandi eru sem
flestir) eindregið hvattir til að mæta og ræða þessi mál.

Tilkynningar 2001
Tilkynningar 2000