| Um Pug tegundina: |
Hér fyrir neðan er að finna allar upplýsingar um Pug hunda. Það skal hins vegar tekið fram að þegar þetta er skrifað á ég ekki Pug hund sjálfur og hef því enga persónulega reynslu af þessari tegund. Þetta er aðeins samantekt af öllu því sem ég hef lesið, bæði á netinu og úr bókum, en ég hef þó látið Pug eiganda með mikla reynslu af mörgum tegundum hunda fara yfir textann, þannig að hann ætti að vera nokkuð réttur. Sem betur fer eru þó ekki allir Pug hundar eins. Hver hefur sinn persónuleika og þeir geta auðvitað verið mjög mismunandi í hegðun líkt og við mannfólkið. Og er þetta því ekki heilagur sannleikur sem á við alla Pug hunda. Ég skitpi þessu niður í eftirfarandi flokka: Saga Er Pug fyrir þig? Lýsing Eiginleikar Umhirða Hreyfing Fóðrun Stærð, þyngd og aldur Pug standard (á ensku) |
| Saga tegundarinnar: |
Uppruni Pug tegundarinnar er ekki mjög vel þekktur. Þeir komu frá Asíu (mjög líklega Kína) en hvenær þeir urðu fyrst til er enn óvíst og verður líklega alltaf þannig. Hundum með "stutt trýni" er fyrst lýst í bókum sem skrifaðar voru árið 600 fyrir krist en það voru líklega forfeður tegundarinnar, þótt þeir hafi ekki litið út eins og Pug hundar samtímans. Árið 950 eftir Krist skrifaði síðan kínverski keisarinn Kang His flettirit um allar kínversku hundategundirnar. Í því voru tvær tilvitnanir sem gætu hugsanlega lýst Pug: "hundar með stutta fætur" og "hundar með stuttan haus". Það var ekki fyrr en seint á 16. öld að Pug hundar komu til Evrópu, þá fyrst til Hollands, en þaðan voru þeir seldir til annarra Evrópulanda svo sem Portúgal, Spánar og Englands og var þá aðeins vitað um leir-ljósa og apríkósu-gula Pug hunda. Það var fyrst á 18. öld að vitað var um tilvist svartra Pug hunda, þökk sé listmálaranum og Pug eigandanum William Hogarth, sem málaði einn þannig í málverki sínu, House of cards, árið 1730. Hann gerði mörg málverk af hundum sínum og því er til mikið af gögnum um útlit Pug hunda frá þeim tíma og til dagsins í dag. Það voru aðallega tvær ættir, á þeim tíma, sem héldu kyninu gangandi í Evrópu, en það voru Willoughby Pugs, sem voru frekar gráir með svartan haus og Morrison Pugs, sem voru Apríkósu-gulir að lit með svart trýni. Það var síðan árið 1860 sem stórt atvik átti sér stað í Pug ræktun. Fluttir voru inn til Englands tveir Hreinræktaðir Pug hundar frá Kína sem hétu Lamb og Moss. Þeir eignuðust soninn Click, sem var margoft notaður til undaneldis og blóð hans hjálpaði mikið til við að blanda saman Willoughby og Morrison ættunum og upp frá því þróaðist Pug tegundin í það sem hún er í dag. Pug hundar voru fyrst sýndir á hundasýningu á Englandi árið 1861. Tíu árum seinna byrjaði útgáfa á ættbókum hreinræktaðra hunda og í fyrstu bókinni voru 66 Pug hundar, en nú eru þeir mun fleiri og dreifðir út um allan heim. |
| Lýsing: |
Pug hundar eru litlir og dálítið kubbslegir, enda er íslenska þýðingin á tegundinni Kubbur. Þeir eru sterklega byggðir, vöðvastæltir og samræma sér einstaklega vel. Skottið er snúðslaga, hringar sig þétt saman og þykir það allra flottast þegar það myndar tvo hringi. Hausinn er breiður og mikill, ávalur með djúpar hrukkur á enni og "fegrunarblett" á hvorri kinn. Hann er með stór og hnöttótt augu, í dökkum lit, sem eru útstæð og gljáandi og flatt trýnið á alltaf að vera svart. Eyrun eru mjúk sem flauel, lítil og þunn og eru svört á lit líkt og trýnið. Feldurinn er þykkur með stutt hár, sléttur og mjúkur viðkomu og alltaf einlitur. Ef hundurinn er ljós á litinn getur þó legið dökkur áll eftir bakinu. Viðurkenndu litirnir eru þrír: leir-ljós (fawn) sem er vinsælastur, apríkósugulur (apricot) sem er mjög sjaldgæfur nú til dags og svartur (black) sem er nokkuð sjaldgjæfur, en fer þó ört fjölgandi. Einstaka sinnum koma þó upp furðulegir litir svo sem hvítur (albino) eða bröndóttur (brindle) en þrátt fyrir það er Pug alltaf Pug í hvaða lit sem er!!! |
| Umhirða: |
Öll umhirða Pug hunda er mjög auðveld. Best er að bursta feldinn daglega, nokkrar mínútur í senn, með stífum hárbursta og mikilvægt er að aldrei sé notaður járnbursti. þeir elska að láta bursta sig og verður þessi daglega athöfn því að ánægjustund, vonandi fyrir báða aðila. Það má þó ekki gleyma því að góð umhirða byrjar innanfrá og til þess að hundurinn líti vel út að utan þarf hann að vera heilbrigður. Því þarf að passa að hann fái gott fæði, hreint vatn, góða hvíld og hæfilega hreyfingu. Allt þetta leiðir til þess að hundurinn fer minna úr hárum. Pug hundar eru mjög hreinlátir hundar og því er óþarfi að baða þá oft. Ef hundurinn þinn kemur skítugur inn er nóg að taka þykkt handklæði, bleytt með volgu vatni og nudda feldinn kröftulega. Síðan þarf að þurrka hann mjög vel, því annars er hætta á að hann ofkælis. Þá verður ávallt að hreinsa andlitið vel og passa að engin óhreinindi leynist í augum, eyrum, bak við trýnishrukku eða á milli hrukknanna á enninu. Þetta er gert með rökum klút eða bómull og gæta skal fyllstu varúðar til þess að skemma ekki þessi viðkvæmu líffæri. Síðan er það erfiði hlutinn, að klippa klærnar. Af einhverri ástæðu verða Pug hundar snarvitlausir þegar það er og því fastar sem þú heldur þeim, því meira sprikla þeir. Það er því um að gera að venja þá á þetta frá fæðingu og reyna að komast hjá því að klippa í kvikuna. Ef ekkert gengur er hægt að fara með þá til dýralæknis. |
|
|