Í ferðaþjónustunni í Þurranesi er boðið upp á gistingu í tveimur húsum,

eldra einbýlishúsi og nýju sumarhúsi.

 Eldra húsið er rúmlega 80 m2. Í því eru þrjú svefnherbergi, setustofa, eldhús og baðherbergi með sturtu.  Í eldhúsinu er ísskápur og nauðsynleg eldhúsáhöld. 

Í setustofunni er sjónvarp og lesefni. 

Heitur pottur!

Boðið er upp á svefnpokapláss og uppbúin rúm fyrir allt að 8 manns. 

Hægt er að tjalda í nágrenni við húsið.

 

Nýja sumarhúsið sem tekið var í notkun vorið 2008 er 43 m2.  Í því eru tvö svefnherbergi með tvíbreiðum rúmum og svefnloft með dýnum og tekur því að minnsta kosti 6 manns. Baðherbergi með sturtu og í eldhúskróknum er ísskápur og nauðsynleg eldhúsáhöld.

Í stofunni er sjónvarp. 

 

Ferðaþjónustan í Þurranesi er opin allan ársins hring!

 

Þessi síða var uppfærð í júní 2009