Upphafssíða

* Helstu gönguleiðir *

Menningarminjar & saga

Jarðsaga Hengilssvæðisins

Tenglar (krækjur) um síðuna

 

 Gestabók

 

Síða uppsett: 07.12.2001

Síðu breytt: 11.02.2008

 

 

 

 

 

 

 

BOTNADALUR: gönguleiðir frá Botnadal

Stutt leiðarlýsing:

Botnadalur er eiginlega ekki sá hefðbundni staður þar sem fólk hefur gönguleiðina, nema það sé að ganga eða stefna að einhverju sérstöku. Botnadalur er meira staður þar sem göngufólk á leið þarna um. Hægt er að velja um tvær mismunandi leiðir frá Botnadal.

Hér kemur nánari leiðarlýsing ásamt myndum:

Botnadalur
 
Hægt er að hefja gönguferð í Botnadal.

Tvær megingönguleiðir liggja frá Botnadal.  Önnur liggur í norður í átt að Þingvallavatni, um Nesjahraun. Skógarhóll 2,6 km og Grámelur 4,6 km. 

Hin gönguleiðin liggur í suður um Dyrafjöll í átt að Dyradal. Sú leið er um 4.9 km löng, u.þ.b. 1-1,5 klst. Og ef lengra er haldið er hægt að ganga meðfram Húsmúlanum að Sleggjubeinsdal sem er 18 km löng leið.

Myndin hér fyrir ofan sýnir Botndal.

 

Bílastæði og upplýsingaskilti
Bílastæði og upplýsingaskilti í Botnadal.

GPS hnit upplýsingaskiltis: N 64°08,252 - V 021°15.200.

 

Upplýsingaskilti
Upplýsingarskilti í Botnadal.

 

Gönguleiðaskilti og vegvísir
Gönguleiðaskilti og vegvísar í Botnadal.

 

Jarðsig í Botnadal. Skammt frá upplýsingaskilti og upphafi gönguleiða.

 

Tóftir af bænum í Botnadal
Búið var í Botnadal á árunum 1832 til 1844. Á þessum árum var aukning í hjáleigubúskap. Þrátt fyrir það þá hefur búskapur í Botnadal verið æði erfiður sökum náttúruafla.

Enn má sjá tóftir af bænum í Botnadal, bærinn sjálfur og þrjú útihús. Bærinn hefur ekki verið mjög stór af tóftum að dæma.

Myndin hér fyrir ofan er af tóttum bæjarins. Ógreinilegt er að sjá tóttirnar á þessari mynd en hægt er að greina bæinn ef rýnt er í myndina. 

Þá eru til sagnir um Huldufólkskirkju í Botnadal.

Nánar um Botnadalsbæ.

 

Myndir AÞE. Maí 2001 - Mars 2004