|
Hellisheiðarvirkjun;
ný virkjun á Hengilssvæðinu |
| Framkvæmdir vegna Hellisheiðarvirkjunar hafa
staðið yfir í fjölda ára en 1985 var fyrst boruð tillraunaborhola skammt frá
Kolviðarhóli. 1994 var boruð hola á Ölkelduhálsi en síðan til frekari
ákvarðanatöku var boraðar tvær holur á Hellisheiði árið 2001 og þrjár þar til
viðbótar árið 2002.
Tillit var tekið til náttúrunnar og minja á svæðinu. Virkjunin og framkvæmdin
öll gekkst undir allsherjar umhverfismat og fleiri aðilar tóku þátt í skoðun á
svæðinu m.a. við leit að hugsanlegum fornum mannvistarleifum. |
|
 |
|
Orkuveita Reykjavíkur (OR) stendur í
framkvæmdum við að reisa nýja jarðvarmavirkjun til rafmagns og
heitavatnsframleiðslu. Vegna þessarra framkvæmda þá hefur þetta
minniháttar áhrif á göngufólk sem hyggst leggja á Hengilinn. Mesta
röskunin er í kringum Sleggjubeinsdal þar sem verið er að reisa
stöðvarhús Hellisheiðarvirkjunar. Það svæði hafði síðast þegar ég vissi
verið lokað af, merkt með skiltum. En framkvæmdaaðilar og stórar
vinnuvélar eiga leið þarna um í kringum Sleggjubeinsdal, Kolviðarhól,
Hellisskarð, Stóra-Skarðsmýrarfjall og Stóra-Reykjafell.
Framkvæmdasvæðið er þó stærra en einhver röskun á sér stað einnig á
Bolavöllum. Göngufólk og ferðamönnum er ráðlagt að fara eftir
leiðbeiningum framkvæmdaaðila.
Hér má sjá tölvugerða ljósmynd af fullkláruðu stöðvarhúsi
Hellisheiðarvirkjunar.
|
|
 |
|
Nánari upplýsingar og fróðleikur um Hellisheiðarvirkjun má nálgast á
heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur.
Þegar framkvæmdum lýkur má gera ráð fyrir að
Hellisheiðarvirkjun muni framleiða 120 MWe af raforku og varmastöð sem
afkasta allt að 400 MWth. 2006 mun hefjast rafmagnsframleiðsla en áætlað
gangsetning varmastöðvar verði 2009.
Framkvæmdir við Hellisheiðarvirkjun í
fullum gangi í maí 2006.
|
|
 |
|
Rannsóknir, kannanir, umhverfismat og fleira
hafa staðið yfir á svæðinu í fjölda ára og niðurstaðan er þessi. Um er
að ræða tvö virkjanasvæði á Hengilssvæðinu sem Hellisheiðarvirkjun nær
til, svokallað efra og neðra virkjunarsvæði. Það efra er fyrir ofan
Hellisskarðið og Kolviðarhól og það neðra er fyrir neðan
Hellisskarðið, skammt austan við
Kolviðarhól.
Framkvæmdir við stöðvarhús
Hellisheiðarvirkjunar, júní 2006. |
|
|
Myndir AÞE og Orkuveita Reykjavíkur; Maí
2006 |