Upphafssíða

* Helstu gönguleiðir *

Menningarminjar & saga

Jarðsaga Hengilssvæðisins

Tenglar (krækjur) um síðuna

 

 Gestabók

 

Síða uppsett: 07.12.2001

Síðu breytt: 11.02.2008

 

 

 

 

 

 

 

HELLISSKARÐ OG BÚASTEINN: gamla Þjóðleiðin og fornar sagnir

 
Hellisskarð horft í vestur
 
Gamla Þjóðleiðin lá um Hellisskarð, sem er vestast á Hellisheiði. Í fornum heimildum kemur fram að Hellisskarð hefur áður verið nefnt Öxnaskarð og einnig Nautaskarð. En nafnið Nautaskarð var tilkomið vegna nautarekstur Ölfusinga, er naut voru rekin um Skarðið.

Heilmikið útsýni er frá Hellisskarði. Ljósmyndin hér til vinstri er tekin efst í Hellisskarði. Vegurinn liggur hægra meginn í hlíðinni.

ATH: Vegna framkvæmda við Hellisheiðarvirkjun má gera ráð fyrir umferð stórra vinnuvéla um þetta svæði ásamt hluti þess er lokaður umferð almennings. 

 

Hellisskarð
 Hellisskarð og Kolviðarhóll á miðri mynd. Stóra-Reykjafell á hægri meginn.

 

Upplýsingarskilti við Búastein
Ljósmynd af upplýsingarskilti sem er skammt frá Búasteini. Á þessu upplýsingaskilti er að finna stutta lýsingu um sögu Búasteins og einnig um Kolviðarhól.

Minnst er á Búastein í Kjalnesinga sögu. En þar er sagt frá  Búa Andriðsson sem lenti í bardaga á þessum stað og varðist víst frækilega. En sagan segir að Búi og Kolfinnur á Vatni (Elliðavatni) hafi leitt hugann að sömu konunni, Ólöfu hina vænu, dóttur Kolla sem byggði Kollafjörð. Þessi bardagi endaði með því að Búi drap Kolfinn eða Kolvið eins og hann var kallaður og heygði hann á Kolviðarhóli. 

 

Búasteinn
 Á miðri mynd má sjá Búastein. Búasteinn er stór þverhníptur sandsteinsklettur, teningslaga. Búasteinn er skammt frá Kolviðarhóli.

(GPS punktur Búasteins 64 02.332 N - 21 23.087 V)

Myndir AÞE; mars 2004