|
SLEGGJUBEINSDALUR; gönguleið
frá Sleggjubeinsdal |
|
Stutt leiðarlýsing: Sleggjubeinsdalur -
Hengill - Vörðu Skeggi
| Gönguleiðin hefst í Sleggjubeinsdal, sem er
dalverpi sem gengur inn að Hengli á milli Skarðsmýrarfjalls og Húsmúla. Í
Sleggjubeinsdal eru 4 hverasvæði, um er að ræða gufu og brennisteinshveri og 60
gráðu heita laug. Úr
Sleggjubeinsdal er góð gönguleið um Sleggjubeinsskarð inn í Innstadal og áfram
upp á Hengil, Vörðu - Skeggja. Ein þessara leiða, liggur úr Sleggjubeinsdal,
vestur fyrir Húsmúla og inn í Engidal norðan hans. Önnur mjög skemmtileg leið og
styttri liggur yfir Húsmúlann, undir Sleggju. Þegar upp á Húsmúlann kemur opnast
sýn norður yfir Engidal og Þjófahlaup vestan undir Hengli. Engidalur er grösugur
og mýrlendur. Úr norðri kemur Engidalshvísl, sem er samsafn lækja úr
vesturhlíðum Hengils. Hana er oftast hægt að stikla. Við suðurenda Þjófahlaups,
vestan Engidalshvíslar er nýlegt hús sem Orkuveita Reykjavíkur á. Það er opið
fyrir göngufólk. Austan árinnar,
langleiðina uppi við Hengil, rís upp úr grónu landinu sérkennilegur
klettadrangur sem minnir á risavaxna höggmynd af skepnu einni mikilli og er vel
þess virði að staldra við og skoða. |
Hér kemur nánari leiðarlýsing ásamt myndum og
korti:
|
 |
|
Rauða línan sýnir gönguleiðina sem fjallað er
um. Upphaf í Sleggjubeinsdal, liggur um (yfir) Innstadal og að Vörðu-Skeggja. Smelltu á kortið til að fá stærri og skýrari mynd. |
|
 |
|
Ljósmynd tekin skammt frá Suðurlandsvegi á leiðinni í
Sleggjubeinssdal. Þessi leið liggur að skíðaskálum Vals og Víkings og upphafi gönguleiðar
í Sleggjubeinsdal.
Þessi mynd sýnir Húsmúla sem er lengst til vinstri. Sleggjubeinsdalur og Hengill til miðju.
Skarðsmýrarfjall og Hellisskarð lengst til hægri. Húsmúli
er úr grágrýti og móbergi en Skarðsmýrarfjall er úr móbergi.
ATH: Gömul mynd: með tilkomu
Hellisheiðarvirkjunar hefur umhverfi
breyst töluvert. |
|
 |
|
Bílastæði við upphaf gönguleiðar í
Sleggjubeinsdal, þarna er upplýsingaskilti og vegvísar
( sjá mynd, Gps hnit
upplýsingaskiltis: 64°02,761 N - 21°22,798 V ).
Þegar þarna er komið er hægt að velja um tvær megin gönguleiðir.
Fyrri gönguleiðin liggur um Húsmúla, frammhjá Draugatjörn, um Engidal, Marardal og að
Dyradal. Við Húsmúla eru ýmsar menningarminjarnar. Ekki munum við fara nánar út í þá leið hér.
Hægt er að fræðast nánar um þessa leið á síðunni um
Húsmúlarétt og Draugatjörn. |
|
 |
|
Hin gönguleiðin, liggur um Sleggjubeinsdal og að Innstadal.
Gangan upp á hálsinn í Sleggjubeinsdal er ekki löng en hækkunin er
nokkur og dálítið brött. Upp á hálsinum er komið
að vegvísi sem er 1.4
km frá upphafi gönguleiðarinnar.
Hér má sjá mynd frá gönguleiðinni, tekin
skammt frá upphafi gönguleiðarinnar. Horft í átt að Sleggjubeinsdal.
Skíðaskáli Víkings á hægri hönd. |
|
 |
|
Við þennan
vegvísi* skiptist gönguleiðin í tvær gönguleiðir.
Önnur leiðin liggur um Innstadal, Hengladal og svo jafnvel
að Ölkelduhálsi en ca. 9 km leið er að Ölkelduhálsi.
Hin gönguleiðin liggur um hátt
klettabelti yfir Innstadal og að
Vörðu-Skeggja sem er ca. 5.2 km gönguleið. Þessi leið hefur verið
skilgreind sem fremur erfið og brött. En gengið er eftir hryggnum fyrir
ofan Innstadal.
Erfiðleikastig: svartur litur.
*GPS hnit vegvísis: 64°03,337 N - 21° 21,880V)
Til að fræðast frekar um leiðina sem liggur frá
vegvísinum um Innstadal er vert að skoða síðuna sem er sérstaklega um
Hengladali og þá Innstadal. |
|
 |
|
Á leið okkar á Vörðu-Skeggja, um
Víkingaleiðina, má
sjá ýmislegt athyglisvert. Gróðurfar og bergtegundir á þessu svæði er fjölbreytt
og fallegt. Í Sleggjubeinsdal eru 4 hverasvæði, um er að ræða gufu og
brennisteinshveri og 60 gráðu heita laug.
Gengið er eftir brún fjallsins en heilmikið útsýni er yfir
Miðdalsheiði á þessari leið.
Myndin hér fyrir ofan sýnir skíðaskála Víkings í Sleggjubeinsskarði sem
er næst, fjær eru skíðaskálar ÍR og Valsskáli. |
|
 |
| Brattar hlíðar og fjallgarðar.
Þingvallavatn sést í fjarska. Efsti hluti Hengilssins er aðallega úr
móbergi en efst er grágrýtishrúður. |
|
 |
|
Sunnan meginn við Hengilinn eru þrír
dalir sem bera sameiginlega heitið Hengladalir. Það eru
Innstidalur,
Miðdalur og svo Fremstidalur. Talið frá vestur til suðurs.
Myndin hér fyrir ofan er tekin frá gönguleið á leiðinni á Hengilinn.
Horft er í suður yfir
Innstadal.
Upptök Hengladalsár er í þessum dölum. Hengladalsá rennur síðan í Ölfus í
Reykjadalsá. |
|
|
Myndir AÞE. |